miðvikudagur, 20. nóvember 2013

Óskalisti

Mig langar í svo ótrúlega margt. Bara ef ég ætti mikið mikið af peningum þannig að ég gæti keypt mér allt sem mig langar í. Ég hef verið að safna í óskalista dálítið lengi og ákvað því að birta aðalhlutina sem mér lagar í hér, þótt ég viti að það séu litlar sem engar líkur að ég eigi eftir að eignast þá alla, en maður má alltaf láta sér dreyma.

Byrjum á stóru hlutunum:


Róðravél

Mig hefur lengi langað að bæta róðravél í safnið af ræktardóti. Við eigum hjól hérna heima en mig lagar líka í góða róðravél, maður getur aldrei átt of mikið af dóti í ræktina sína!


Blendtec blandari 
Langar í góðan blandara. Við eigum æðislegan blandara sem fylgdi með matvinnsluvélinni okkar sem að við fengum í jólagjör frá mömmu og pabba 2011. En mig lagar sammt í einn svona alvöru sem getur allt og Blendtec er klárlega eftstur á óskalistanum. Þar á eftir kemur Vitamix blandari.


GPS og púlsklukka í sama úri. 
Ég á púlsmæli og Halli á GPS klukku. En mig lagar í úr sem hefur bæði. Ég stefni allavega á eitt lengra hlaup á næsta ári og svona klukka myndi hjálpa svo mikið til. Klukkan á myndinni er Forerunner 910XT sem er sérhönnuð fyrir þríþraut, en það er einmitt draumurinn að einn daginn að taka þátt í einni svoleiðis keppni.


Kitchenaid hrærivél.

Maður má alltaf láta sig dreyma og mig dreymir um Kitchenaid hrærivél. Þarf ég að segja meira?


Samsung Galaxy S4 

Eftir að Nokia síminn minn endaði í klósettinu í enda sumars hef ég verið að nota gamla símann hans Halla, sem virkar fínt, svona þegar hann er ekki að frjósa eða endurræsa sig. Ég býst hinsvegar ekki við að kaupa mér nýjan síma fyrr en í fyrsta lagi í byrjuninni á næsta ári.


Svo langar mig náttúrulega alltaf í fuuullt af fötum...



Lengi hefur mig langað í vöðva leggins frá Black Milk Clothing. Þær eru bara svo töff!


Þessar leggings eru líka frá Blac Milk Clothing.

Langar í þessar hot pants frá Flag nor Fail. Koma reyndar ekki í sölu fyrr en 29. nóvember, en þær eru svooo töff!


Þessar stuttbuxur eru líka frá Flag nor Fail og mér finnst liturinn á þeim svo hrikalega töff. Væru örugglega geggjaðar í hitanum næsta sumar. 






Svo langar mig í þetta "sett" frá Better Bodies. Ég er öll fyrir grátt camo þessa dagana.





Þetta er samt bara hluti af því sem mig langar í. Ótal margir skór, fínir kjólar og hlýar peysur sem eru einnig á óskarlistanum, en það kemur kanski seinna.



-KristínÞorvalds.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli