Ég hef lesið markt um hollustu síðasta árið eða svo, heyrt skoðanir margra á því hvernig maður á að borða og hvernig ekki. Það fyndnasta sem ég hef heyrt er þegar fólk segir að maður eigi ekki að borða avacado því að það sé svo feitt!
Hollar fitur eru nauðsynlegar þegar maður er að taka sig á, nauðsynlegar! Avacado er stútfullt af hollum fitum sem eru góðar fyrir mannslíkamann, en eins og allt annað á maður þá ekki að borða endalaust mikið af því. Allt er gott í hófi.
Uppáhalds maturinn minn í heiminum er Mexicóskur; tortillur, quesadillas, mexico súpur, kjúlla nachos og fleira og fleira. Sem er vel hægt að gera hollt með því að nota fullt af grænmeti, heilhveiti eða spellt í stað hveitis og borða guacamole með! Ég elska guacamole, það er bara stappað grænmeti, smá sallt og pipar og vola! Geggjað meðlæti.
Ég keypti alltaf tilbúið guacamole út í búð einu sinni, því að ég hélt að það væri svo erfitt að gera það sjálf, en svo fattaði ég að það er miklu hollara að gera það sjálfur, og svo tekur það enga stund! Einfallt og þægilegt. Svo skemmir það ekki fyrir að það er miklu betra á bragðið.
Guacamole: uppskrift fyrir 2.
1/2 rauðlakur saxaður smátt niður(ég vill mikin rauðlauk, flestir nota ca 1/3)
2 - 3 kirsuberja tómatar(eða 1/2 venjulegur) saxað smátt niður.
1 avakadó, þroskað. Ekki of hart og alls ekki of mjúkt.(Það tók okkur Halla nokkur skipti að læra hvenær þau eru nógu þroskuð) Það er stappað í drasl.
smá safi úr sítrónu
smá sallt og pipar
Hvítlaukur ef þér finnst það vanta(sjálf nota ég alltaf bara laukkrydd, því mér finnst hvítlaukurinn alltaf yfirgnæfa allt annað bragð)
Svo er þessu öllu stappað vel saman og borið fram. Nammi!
Hversu girnilegt er þetta ;) (Halla finnst það hinsvegar alltaf líta illa út, en rosa gott á bragðið!)
Kv. Kristin Þorvalds.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli