miðvikudagur, 27. júlí 2011

Heilsu kokteill

Ég er nú ekki mikil kokteil-manneskja, enda drekk ég áfengi mjög sjaldan. En finnst alltaf gaman að fá mér mojito eða eitthvað hrikalega stelpulegt þegar ég fæ mér í glas.

Í gær, áður en ég fór á CrossFit æfingu gerði ég mér Boozt, sem er alls ekki nýtt, því að boozt er hluti af mataræðinu mínu nánast alla daga. en í gær ákvað ég að drekka það úr kokteilglasi, bara því það er töff! ;)

Vantar bara regnhlífina!

Heilsu kokteill sem er rosa góður á bragðið og alls ekki það óhollur!

Ég notaði frosna berjablöndu úr Coop(Veit að hún fæst í Samkaup-Úrval, nettó og fleiri verslunum heima á Íslandi), einn meðal banana, hreint jógúrt(því ekki fæ ég skyr hér), kókos eftir smekk, eggjahvíta(til að auka prótínið) og Bravo hreinan ávaxtasafa(sem btw hefur engan viðbættan sykur og mjög góður á bragðið). Öllu hent í blandarann og vola! mjög gott :)

Á svo eftir að prófa að gera með grænan kokteil úr spínati, appelsínu, avakadó  og einhverju fleiru girnilegu. Endilega kommentaðu ef þú hefur uppskrift af góðum grænum!

-Kristin Þorvalds.


1 ummæli:

  1. Úllalla lúkkar vel! Mér finnst rosa gott að setja engifer og mangó með útí svona grænan. Líka kannski græn epli og gúrku :) svooo gaman að sulla saman hollu dóti í hristara og prufa sig áfram!

    SvaraEyða