Í gær, áður en ég fór á CrossFit æfingu gerði ég mér Boozt, sem er alls ekki nýtt, því að boozt er hluti af mataræðinu mínu nánast alla daga. en í gær ákvað ég að drekka það úr kokteilglasi, bara því það er töff! ;)
Vantar bara regnhlífina!
Heilsu kokteill sem er rosa góður á bragðið og alls ekki það óhollur!
Ég notaði frosna berjablöndu úr Coop(Veit að hún fæst í Samkaup-Úrval, nettó og fleiri verslunum heima á Íslandi), einn meðal banana, hreint jógúrt(því ekki fæ ég skyr hér), kókos eftir smekk, eggjahvíta(til að auka prótínið) og Bravo hreinan ávaxtasafa(sem btw hefur engan viðbættan sykur og mjög góður á bragðið). Öllu hent í blandarann og vola! mjög gott :)
Á svo eftir að prófa að gera með grænan kokteil úr spínati, appelsínu, avakadó og einhverju fleiru girnilegu. Endilega kommentaðu ef þú hefur uppskrift af góðum grænum!
-Kristin Þorvalds.
Úllalla lúkkar vel! Mér finnst rosa gott að setja engifer og mangó með útí svona grænan. Líka kannski græn epli og gúrku :) svooo gaman að sulla saman hollu dóti í hristara og prufa sig áfram!
SvaraEyða