miðvikudagur, 5. október 2011

Smá update

Ég er á lífi, bara ótrulega upptekin þessa dagana...

Skráði mig í fjarnám í tveimur áfögnum - sjáum hvernig það gengur!

Er loksins byrjuð að æfa almennilega aftur eftir frekar kjánalegan september.

Lyfti þungt þrisvar í viku með Halla og svo tökum við tvær CrossFit æfingar saman. Svo brenni ég og tek maga einu sinni í viku.

Er ótrúlega fúl með það að hafa ekki ennþá fengið vinnu, en núna er það bara að spíta í lófana og fara að sækja um allt!

En þar til ég fæ vinnu þá einbeiti ég mér bara af því að læra.

Sótti um Næringarfræði í Háskólanum í Uppsala eftir áramót - En ef ég kemst ekki inn er ég virkilega að spá í því að fara í einkaþjálfarann. - Kemur allt í ljós í desember.

Vildi bara henda nokkrum línum hérna inn. Lofa að reyna að vera duglegri að láta vita af mér :)

-KristínÞorv.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli