þriðjudagur, 8. nóvember 2011

8. nóvember 2011

Er búin að bíða eftir því í mánuð að skyr komi í búðirnar hérna í kringum min. Reyndar ekki íslenskt skyr, heldur skyr framleitt í noregi eftir íslenskri uppskrift. Þið getið þá rétt ýmindað ykkur hvað ég var spennt þegar ég sá það í gær og jarðaberja skyr var komið í Coop Extra sem ég versla alltaf í! Loksins fæ ég skyr aftur! Loksins, var hugsunun, alveg þangað til ég sá hvað það kostar! 18 kr sænskar, er þetta eitthvað djók? 324 kr íslenskar fyrir 160g af skyri?


Nú veit ég reyndar ekki hvað 200g af skyri kostar heima, en mér finnst 18kr sænskar allt of mikið fyrir 160g af skyri. Það er ódýrara fyrir mig að kaupa hreina jógúrt og henda í hana eggjahvítu eins og ég hef verið að gera! En hinsvegar þá stóðst ég ekki mátið og keypti 2 skyr handa okkur Halla, og ó mæ. Maður veit ekki hverju maður hefur verið að missa af fyrr en maður fær það aftur! Rosalega sakna ég þess að geta borðað eins mikið skyr og ég vildi.


Ég tala nú ekki um lambakjötið! Lambakjöt hérna úti er svo dýrt að ég tými einfaldlega ekki að kaupa það. Svo hef ég líka heyrt að það sé nú ekkert sérlega gott. En samt sem áður þá tekur það pínu tíma að venjast því að borða öðruvísi, þar sem svínakjöt fer ekkert rosalega vel í mig þá borðum við ekki mikið af því. Hinsvegar er svínakjöt það kjöt sem svíar borða lang mest af, það er langtum mest framboð af því. Fyrst að við borðum ekki mikið af svínakjöti og ekkert lambakjöt, þá verður maður að leita eitthvað annað. Nautakjöt!


Það er það kjöt sem við borðum lang mest af þessa dagana, því það er betra en svínakjötið og mun ódýrara en lambakjötið! Svo er þap líka bara svo hrikalega gott! :) kjúklingurinn er svo auðvitað alltaf á matseðlinum okkar, enda bráðhollur og góður.


Hinsvegar saknar maður íslenskar matargerðar stundum, undanfarið hefur okkur ekki langað í neitt annað en skyr og lambakjöt. Nú getum við hinsvegar farið að fá okkur skyr ca 1x í viku, en lambakjötið það verður að bíða til jóla. Svo erum við líka að láta okkur dreyma um íslenskar pizzur og íslenska hamborgara, því hér eru bara ítalskar pizzur og farshamborgarar. Sem eru sko ekki það góðir! En ætli við eigum ekki eftir að njóta matarins vel heima á Íslandi eftir rúmar 6 vikur, jú ég held það bara ! :)

-KristínÞorv.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli